Hún á afmæl' í dag, hún á afmæl' í dag, hún á afmæl' hún Sæja, hún á afmæl' í dag

Þessi blogg færsla verður í styttri kantinum að þessu sinni þar sem ég er mjög busy manneskja, en mig langar nú samt að tileinka hana Særúnu systur minni sem jú er 25 ára í dag!Wink

Til hamingju með afmælið elsku systir!Kissing

Hún Særún bauð mér í afmælisveislu til sín og vildi ég gjarnan fara þangað en þar sem ég er mjög busy manneskja þá buðust mér þrír hlutir að gera í kvöld, það voru að vinna á Broadway, Þorrablót í Brún og síðast en ekki síst afmæli hjá henni Sæju! En ég var því miður búin að plana fyrir löngu að taka að mér þessa vinnu á Broadway því ég þarf jú að safna upp í þessa blessuðu fótboltaferð sem ég er að fara í.

En Særún þú færð bara gjöfina þína síðar, þar sem ég held ég komist ekki til þín í dag (þú átt hérna lítinn og sætann pakka hjá mér, þó svo að þú fáir líka gjöfina frá mér sem mamma og pabbi ætla að gefa þér)

485622297_1f7f0e69aa_m

Þarna er þessi elska ásamt Imbu

2007_12260092

jólaleg er hún

kv. Alla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég þakka kærlega fyrir kveðjuna og gjöfina. Verst að þú gast ekki staldrað lengur við.

Sæja (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 20:26

2 Smámynd: Aðalheiður Kristjánsdóttir

Já ég hefði svo sannarlega viljað staldra lengur við! En það verður bara að gerast næst þegar þú heldur svona afmælisteiti;)

Aðalheiður Kristjánsdóttir, 29.1.2008 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband