Þessi blogg færsla verður í styttri kantinum að þessu sinni þar sem ég er mjög busy manneskja, en mig langar nú samt að tileinka hana Særúnu systur minni sem jú er 25 ára í dag!
Til hamingju með afmælið elsku systir!
Hún Særún bauð mér í afmælisveislu til sín og vildi ég gjarnan fara þangað en þar sem ég er mjög busy manneskja þá buðust mér þrír hlutir að gera í kvöld, það voru að vinna á Broadway, Þorrablót í Brún og síðast en ekki síst afmæli hjá henni Sæju! En ég var því miður búin að plana fyrir löngu að taka að mér þessa vinnu á Broadway því ég þarf jú að safna upp í þessa blessuðu fótboltaferð sem ég er að fara í.
En Særún þú færð bara gjöfina þína síðar, þar sem ég held ég komist ekki til þín í dag (þú átt hérna lítinn og sætann pakka hjá mér, þó svo að þú fáir líka gjöfina frá mér sem mamma og pabbi ætla að gefa þér)
Þarna er þessi elska ásamt Imbu
jólaleg er hún
kv. Alla
Athugasemdir
Ég þakka kærlega fyrir kveðjuna og gjöfina. Verst að þú gast ekki staldrað lengur við.
Sæja (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 20:26
Já ég hefði svo sannarlega viljað staldra lengur við! En það verður bara að gerast næst þegar þú heldur svona afmælisteiti;)
Aðalheiður Kristjánsdóttir, 29.1.2008 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.